Ullarflokkun

IMG_7992
Námskeið í ullarflokkun haustið 2010 - ókeypis, en krefst skráningar!

Ullarmatsnefnd og Landssamtök sauðfjárbænda í samvinnu við Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands standa fyrir námskeiðum í ullarflokkun víðsvegar um land, sem haldin verða í byrjun nóvember.

Námskeiðin verða haldin í fjárhúsum hjá bændum þar sem rúið verður og ullin flokkuð jafnóðum. Auk þess verður farið yfir reglur um ullarflokkun og sýndar myndir til skýringar.
Fyrirhugað er að halda námskeiðin á 17 stöðum og á sumum þeirra er möguleiki á tveimur námskeiðum sama daginn ef þátttaka verður mikil. Hvert námskeið verður u.þ.b. hálfur dagur ýmist fyrir eða eftir hádegi. Reiknað er með að hámarksfjöldi á hverju námskeiði séu 15 manns. Leiðbeinendur verða Emma Eyþórsdóttir, formaður ullarmatsnefndar og Guðjón Kristinsson, framkvæmdastjóri Ístex h.f.
Markmiðið með þessu átaki er að bæta vinnubrögð við ullarflokkun og stuðla þannig að betri nýtingu og auknu verðmæti ullarinnar.

Námskeiðsgjald er ekkert en gerð er krafa um skráningu
sem fer fram hjá Endurmenntun LbhÍ í síma 433 5000 eða um netfangið endurmenntun@lbhi.is Fram komi nafn, kennitala, heimili og sími.

Skráningarfrestur er til fimmtudagsins 28. október nk.
  •  
    • Borgarfjöður - Steinar II. Laug. 30. okt. kl. 09.00
    • Dalasýsla – Magnússkógar III. Þri. 9. nóv. kl. 09.00
    • Reykhólasveit – Fremri-Gufudalur. Þir. 9. nóv. kl. 16.00
    • Vestfirðir – Minni Hlíð, Bolungavík. Mið. 10. nóv. kl. 13.00
      Í boði eru einnig námskeið í rúningi I og II, sauðfjársæðingum, jord.is o.fl.
      Sjá www.lbhi.is/namskeid

IMG_7998

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband