Fræðslufundur MAST: Díoxín

Matvælastofnun heldur fræðslufund um díoxín miðvikudaginn 30. mars 2011 kl. 15:00-16:00. Á fundinum verður fjallað um hvernig díoxín myndast og hvernig það berst í umhverfið, matvæli og fólk, ásamt vöktun og viðbrögðum þegar efnið greinist yfir viðmiðunarmörkum.

Nýleg greining díoxíns yfir viðmiðunarmörkum í nágrenni Ísafjarðar sýnir að slík efni geta myndast og borist í umhverfið og dýraafurðir hér á landi, rétt eins og í nágrannalöndum okkar en nýlega var gripið til viðamikilla ráðstafana í Þýskalandi vegna víðtækrar díoxínmengunar í búfjárafurðum þegar iðnaðarolíu var blandað í fóður. Hvað er díoxín, hvernig myndast það, hvernig berst það í fólk og hver eru heilsuáhrif þess eru meðal þeirra spurninga sem teknar verða fyrir á fræðslufundinum. Fundurinn er haldinn í samstarfi við Umhverfistofnun og Landlæknisembættið og munu sérfræðingar þessara stofnana, auk Matvælastofnunar, ræða um díoxín í umhverfinu, matvælum og fólki, vöktun og viðbrögð við vá. Hægt verður að fylgjast með fræðslufundinum í beinni útsendingu á vef MAST undir Útgáfa - Fræðslufundir. Þar verður einnig birt upptaka að fræðslufundi loknum.


Fyrirlesarar:


   Sigríður Kristjánsdóttir, deildarstjóri hjá Umhverfisstofnun

   Kjartan Hreinsson, dýralæknir heilbrigðiseftirlits hjá Matvælastofnun

   Haraldur Briem, sóttvarnalæknir hjá Landlæknisembættinu


Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði stofnunarinnar að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Allir velkomnir!


www.mast.is 
 

Mast


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband