18.4.2011 | 18:24
Tilkynning.
Með þessari orðsendingu vil ég vekja athygli á nauðsyn þess að öll ásetningslömb, líka síðheimt lömb séu garnaveikibólusett.
Markmið reglugerðar um bólusetningu sauðfjár og geitfjár til varnar garnaveiki er að stuðla að útrýmingu garnaveiki í jórturdýrum með samstilltu átaki búfjáreigenda, Mast, dýralækna og sveitarfélaga. Það er ljóst að þarna verða allir að leggja sitt af mörkum til að árangur náist í þeim efnum.
Vert er að hafa í huga að árangri bólusetningarinnar í heild sinni er stefnt í hættu ef einstaka aðilar sinna ekki skyldum sínum í þessum efnum og því eru allir bændur hvattir til að passa upp á að öll ásetningslömb hjá þeim sé bólusett.
Bændur sem hafa verið að heimta lömb eftir að þeir létu bólusetja ásetningslömbin í haust og hafa ekki látið bólusetja þau eru hvattir til að láta bólusetja þau hið fyrsta.
Sigríður Jóhannesdóttir
Framkvæmdastjóri
Búnaðarsamtökum Vesturlands
Hvanneyrargötu 3
311 Borgarnes
s: 437-1215 / 892-0515
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.