Nýjar myndir komnar frá Hrútadómunum 2008

Því miður náðust ekki myndir af verðlaunahöfum

Niðurstöður Hrútadóma 2008

Í flokki Veturgamalla hrúta

1.sæti Jaki frá Vík 83.5 stig

2.sæti Bjartur frá Hofi 81.5 stig

Lambhrútar

1.sæti Hannibal frá Hofi 86.0 stig

2.sæti Spotti frá Vík 83.0 stig

3.sæti Lilli frá Vík 83.0 stig

4.sæti Bjarmi frá Bjarmalandi 82.5 stig

5.sæti Sambó frá Vík 82.5 stig

6.sæti Harry frá Stað 82.0 stig

7.sæti Heimir frá Stað 81.5 stig

8.sæti Þráður frá Vík 81.5 stig

Dómari var Friðrik Jónsson frá Búnaðarsambandi Vesturlands.


Hrútadómar 2008

Jæja þá er komin tímasetning á Hrútadómana í fjárhúsunum í Vík næstkomandi laugardag 18.okt kl 13:30.Þeir sem hafa áhuga á að láta ómskoða ásetningin, veturgamalt fé eða bara konuna eru beðnir um að fara með féið annað hvort á föstudagskvöldið eða laugardagsmorguninn þar sem ráðunauturinn og bóndinn í Vík tekur á móti ykkur og viktar féið. Nauðsynlegt er að féið sé ekki blautt.Mætum nú öll og höfum gaman af nú í kreppuni.(Því betra er að eiga fé á fæti en að eiga fé í banka)eins og bóndinn á Hópi sagði forðum. Nánari upplýsingar gefur Guðjón í síma 8950120.

Hér koma svo fleiri nöfn frá Lofti og Rúnu

Ærnafnavísur eftir Eyjólf Valgeirsson, f. 12. apríl 1914, frá Krossnesi í Árneshreppi.
Þessi 845 rímuðu ærnöfn munu að vísu sum hver ekki algeng í nafnaflóru sauðkindarinnar, þótt ekki hafi hún lotið ákveðnu lögmáli, og gætu því flest eða öll komið til greina í nafnavali.

1. Mona Nýpa Molda Rós
Minní Fála Lúpa
Dugga Askja Dolla Ljós
Dráfríð Mörk og Rjúpa.

2. Alda Kólga Unnur Dröfn
Agga Hrund og Gára
Fokka Blæja Sigla Sjöfn
Særún Hrönn og Bára.

3. Brella Dyngja Della Brá
Döpur Sæmd Áróra
Salvör Átta Slípa Gná
Svunta Golsa Flóra.

4. Æsa Sunna Sóla Rás
Sjáleg Lena Kola
Romsa Kráka Gyðja Glás.
Gusa Finna Rola.

5. Ausa Skvetta Frekja Fönn
Fetta Gullbrá Trana.
Bretta Hosa Spæta Spönn
Spjóta Grána Brana.

6. Ýta Sandra Örk Garún
Odda Svínka Dísa.
Glenna Skita Gráblá Brún
Gemsa Hlín og Vísa.

7. Silfá Bjalla Setta Lús
Samba Klúka Hóra.
Una Varta Kæna Krús
Kelda Svana Móra.

8. Demba Snotra Dögg Fálát
Dimma Kerra Flóra
Bunga Hnyðja Bera Kát
Busla Glæta Dóra.

9. Fjóla Sóley Fífa Hvönn
Fáséð Gul og Spóla
Bytta, Spanda Bylgja Grönn
Blaðra Tuðra Njóla.

10. Gaupa Smára Gríður Mjöll
Gerða Ríp Svarthyrna
Simba Blesa Sara Þöll
Súpa Gæs og Birna.

11. Hýra Gota Huppa Vör
Hreiðurkolla Lýsa
Bora Ebba Sníkja Snör
Snegla Drusla Hnýsa.

12. Bokka Dæla Dúa Örg
Dóróthea Gláma
Bomba Dokka Dúkka Björg
Depla Sjana Bláma.

13. Baga Dúfa Begga Spöng
Bolla Síðklædd Rýna
Skotta Bryðja Ritta Röng
Rengla Selja Pína.

14. Rumba Fera Stækja Stygg
Stappa Rassbót Bína
Olga Komma Framsókn Frygg.
Fríðakolla Nína.

15. Drýna Mýsla Snípa Snörp
Snæfríð Lensa Gjóta
Hneta Gulla Jóka Jörp
Jússa Hjálma Nóta.

16. Subba Gubba Svanhvít Dimm
Surtla Gribba Randa
Gréta Hulda Haka Grimm
Húfa Svarvör Blanda.

17. Skúfa Tuska Bella Böng
Blúnda Tromma Sóta
Dumba Grýla Stella Stöng
Stálgrá Ninna Tóta.

18. Skrítla Rúna Skúta Lind
Skerpla Míla Trissa
Smáfríð Dræsa Gæla Grind
Gremja Hýreyg Skyssa.

19. Syrpa Drottning Dýra Kört
Drusla Flaga Sletta
Rispa Skíma Rella Svört
Reka Kría Gletta.

20. Krumma Óró Katla Drós
Kaka Dúlla Hola
Bumba Skvísa Blágrá Kjós
Bossa Mína Skola.

21. Mylla Ossa Monsa Góna
Mandla Saga Skreppa
Tína Gyllta Tunna Mjóna
Tára Spilda Greppa.

22. Tinna Bettý Skalla Skjót
Skökk Gulrófa Duna
Tanna Fóstra Féleg Ljót
Fáráð Spraka Buna.

23. Sólbrá Hrefna Botna Blíð
Brúska Ranka Gugga
Smella Trefla Fata Fríð
Fjára Gás og Mugga.

24. Golda Ugla Glöð og Þind
Gróa Sög og Tunga
Bílda Sperra Hetta Hind
Höst Gráhyrna Stunga.

25. Ljósbrá Padda Gudda Greið
Gyða Terta Lína
Gulakolla Gjóska Skeið
Gamma Spræk og Skrína.

26. Berta Snodda Snælda Kröm
Skrumba Etna Væta
Kríma Vera Kolla Þröm
Kemba Snörp Ósk Þræta.

27. Bágræk Háleit Stirtla Stroka
Strympa Hæna Rita Lök
Benda Melrós Brussa Roka
Brynja Dula Nibba Spök.


Hér koma nokkur Ær nöfn frá Lofti og Rúnu (það koma fleiri seinna)

Ærnöfn      Abbadís- Blíða- Fjósa- Hvít- Myrj- Tunna- Aða- Blæja- Flekka- Hyrna- Mýsla- Tæfa- Aðsókn- Blökk- Fljót- Hýra- Mön- Ugla- Afríka- Botna- Flóra- Hæglát- Nepja- Vala- Afrodíta- Bóla- Fluga- Hæra- Netla- Valska- Afrodíta- Bót- Flækja- Höfn- Netta- Vaninhyrna- Alda- Brana- Fora- Höpp- Njóla- Vella- Allrabest- Braselía- Frekja- Iðunn- Nunna- Vepja- Alma- Braut- Freyja- Íma- Næpa- Vesta- Alparós- Brá- Freyja- Íra- Nöf- Viðja- Ameríka- Brák- Fríða- Jóka- Otra- Vía- Angel- Breið- Fönn- Katla- Perla- Víma- Arða- Breiðleit- Gaupa- Kápa Píla- Væna- Asamta- Brekka- Gáma- Ketta- Pína- Vör.

Dómar

Dómar á ásetningslömbum og veturgömlum hrútum verður 17 eða 18 okt. nk. í fjárhúsinu í Vík. Nánari tímasetning verður sett hér inn þegar hún berst.

 sheep


Eftirleitir

Þeir sem hafa ekki fengið allt sitt fé af fjalli og hafa áhuga á að ná því geta sett sig í samband við Dana í Garðbæ S:8482619. Til stendur að fara í fyrramálið um tíu leitið og ná í kindur sem sést hafa í hólfinu. Fréttist af 13 stykkjum sem sáust á víð og dreif um hólfið þó aðallega á milli hálsa.

Rallý

Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur verður með rallýkeppni nk.laugardag 27.sept. Ísólfskála, Djúpavatns- og Kleifarvatnsleið verða lokaðar frá kl: 11 - 17.


Heimtaka

Sláturbíllinn kemur á morgun 23.sept. um hádegi og vert er að benda þeim á sem ætla að taka ket heim, að hægt er að prenta út eyðublað á ss.is til útfyllingar sem auðveldar alla vinnu fyrir okkur og starfsmenn SS. smella hér: http://ss.is/til_baenda/afurdaverd/saudfe/ nearlega á síðunni stendur "eyðublað vegna heimtöku", smella þar og prenta út.


Myndir úr smalinu

Nokkrar myndir úr smalinu eru komnar á myndasíðuna, en það gengur eitthvað illa að setja þær allar inn, það hlítur nú samt að takast.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband